Kórar Íslands á STÖÐ2

Stöð 2 og Sagafilm leita að kórum til að koma fram í annarri þáttaröð Kóra Íslands sem sýnd verður í beinni útsendingu á Stöð 2 í haust. Útsendingarnar fara fram í  stúdíói í Reykjavík og munu 16 kórar keppa um titilinn Kór ársins 2018. Kórarnir flytja lög sín án undirleiks eða við undirleik að eigin vali sem miðast við eitt hljóðfæri.                                                                         
Ef kórinn þinn telur fleiri en 8 meðlimi og allir orðnir 16 ára er ekki eftir neinu að bíða.

Við leitum að kórum hvaðanæva af landinu og af öllum stærðum og gerðum. Þetta er frábært tækifæri fyrir kóra til að vekja á sér athygli og efla starfið og ferðasjóðinn!

Nánari upplýsingar um þættina

Þættirnir skiptast í þrjá hluta: undankeppni, undanúrslit og úrslit

Undankeppni: 4 þættir (þættir 1 til 4). 

Dagsetningar undankeppninnar eru: 30. sept., 7.okt., 14.okt., 21.okt., og mætir hver kór einn þessara daga.
Í hverjum þætti mætast fjórir kórar. Kórarnir syngja eitt lag hver, 3-4 mínútur að lengd.
Úr hverjum þætti komast tveir kórar áfram í undanúrslit; alls átta kórar.
Símakosning ásamt atkvæðum dómnefndar ræður úrslitum um hvaða kórar komast áfram í undanúrslit.

Undanúrslit: 2 þættir (þættir 5 og 6). 

Dagsetningar undanúrslitanna eru: 28. okt. og 4. nóv. og mæta kórar sem komast áfram úr undankeppni annan hvorn daginn. 
Í hvorum þætti mætast fjórir kórar. Kórarnir syngja eitt lag hver, 3-4 mínútur að lengd.
Tveir kórar úr hvorum þætti komast áfram í úrslitaþáttinn með símakosningu og atkvæðum dómnefndar.
Þar að auki mun dómnefndin velja fimmta kórinn áfram úr hópi allra kórannna sem kepptu í undankeppninni (Wildcard).

Úrslitaþátturinn (þáttur 7). 

Úrslitin fara fram 11. nóvember.
Fimm kórar keppa til úrslita og flytja þeir eitt lag hver, 3-4 mínútur að lengd.

Heimsóknir til kóra

Í september heimsækjum við alla kórana sem verða valdir til þátttöku og gerum um þá stutta kynningu. Þar kynnumst við kórunum og umhverfi þeirra. Tekin verða stutt viðtöl og fylgst með æfingum.

Útsendingar og æfingar fyrir þættina

Æfingar og útsendingar fara fram í stúdíói í Reykjavík.

Alla fimmtudaga fyrir hverja beina útsendingu fara fram æfingar á sviðinu.

Kórar af höfuðborgarsvæðinu og nágrenni þurfa að mæta á þá æfingu og fær hver kór um 45 mínútur til æfinga. Sérstakar ráðstafanir verða gerðar fyrir kóra sem koma af landsbyggðinni.

Beinu útsendingarnar fara fram á sunnudögum frá 30. september til 11. nóvember. Hver kór fær úthlutaðan æfingatíma fyrir kamerurennsli á útsendingardeginum. Kórinn er laus eftir æfinguna en þarf að mæta aftur tímanlega fyrir útsendinguna um kvöldið.

Tónlistarstjóri þáttarins, Gísli Magna Sigríðarson, verður kórunum innan handar fyrir hönd framleiðanda.

Vegleg verðlaun

Í fyrra hlaut sigurkórinn ferðavinning að upphæð fjórar milljónir króna. Í ár er stefnt að því að verðlauna fleiri en einn kór.

Höldum áfram að kynna hið fjölbreytta kórastarf sem fram fer í landinu. 
Vertu með og sæktu um á korarislands.is  og komdu kórnum þínum á framfæri.

Sendið fyrirspurnir á netfangið korar@sagafilm.is. 

F.h. Sagafilm
Katrín L. Ingvadóttir
Anna Kristín Úlfarsdóttir
Þór Freysson