Karlakórinn Lóuþrælar

Sagan

Karlakórinn Lóuþrælar er í Húnaþingi vestra og var stofnaður árið 1985. Upphaflega voru kórfélagar 15 en eru nú um helmingi fleiri. Árið 1994 gáfu Lóuþrælar út geisladiskinn “Gömul spor” og haustið 2002 gaf kórinn svo út geisladiskinn “Húmljóð” ásamt sönghópnum Sandlóum en sá hópur er skipaður eiginkonum fyrrverandi og núverandi Lóuþræla. Þriðji hljómdiskur kórsins kemur svo út núna fyrir jólin 2008, og er hann einkum með jóla- og aðventulögum.

Kórinn dregur nafn sitt af nafni Ólafar Pálsdóttur, sem stjórnaði kórnum lengst af, og alltaf kölluð Lóa. Nú er kominn nýr stjórnandi: Guðmundur St. Sigurðsson.