Karlakór Kjalnesinga

Sagan

Karlakór Kjalnesinga var stofnaður árið 1991 af nokkrum félögum af Kjalarnesi og Kjós. Páll Helgason  stjórnaði kórnum frá upphafi en hann hafði  mikil áhrif á tónlistar- og menningarlíf í Kjósarsýslu. Hann lést 2011. Í dag stjórnar Þórður Sigurðarson kórnum. Kórinn hefur á að skipa 60-70 söngmönnum og er æfingaaðstaða kórsins að Fólkvangi á Kjalarnesi.

Kórinn hefur staðið fyrir uppákomum og farið í ferðalög svo sem til Kanada, Ítalíu, Parísar og Berlínar. Aldrei hefur farið á milli mála að kórinn var í heimsókn!

Kórinn hefur gefið út tvo geisladiska: “Kemur heilög hátíð” sem kom út árið 2001 og “Sönghestar” sem kom út árið 2005. Kórinn vinnur nú að upptökum á sínum þriðja diski. Er þar fjör og gleði höfð að leiðarljósi.

Vefsíða Karlakórs Kjalnesinga