Karlakór Akureyrar - Geysir

Sagan

Á Akureyri störfuðu lengi bæði Karlakór Akureyrar (stofnaður 1929) og Karlakórinn Geysir (stofnaður 1922), en árið 1990 var ákveðið að sameina þessa tvo öldnu kóra. KAG gaf út geisladiskinn "Vorkliður" árið 1997 og “Á Ljóðsins Vængjum” sumarið 2005. Á honum eru lög við ljóð Davíðs Stefánssonar.  
         
Undanfarin ár hefur kórinn, auk hefðbundinna tónleika, sett upp alls kyns söngskemmtanir;“Bítla-prógram” eitt árið, “Allra meina bót” annað ár, og síðar “Hæ Hopsasí” sem var safn írskra laga flutt í leikrænum búningi. Þá hefur kórinn unnið töluvert í lögum frá Vilhjálmi Vilhjálmssyni undanfarið. KAG stendur annað hvert ár fyrir fjögurra kóra móti, sem nefnist “Hæ Tröllum, á meðan við tórum”. Jafnframt tekur kórinn þátt í Heklumótum, Sambandi norðlenskra karlakóra, og hefur verið gestakór á Kötlumóti, en Katla er Samband sunnlenskra karlakóra.

 Söngferðir innanlands eru farnar á hverju ári og þriðja hvert ár reynum við að fara í utanlandsferð. Reynt er af fremsta  megni að taka vel á móti þeim kórum, sem koma norður.

Vefsíða Karlakórs Akureyrar - Geysir