| Formaður, Bíldudal: | Guðmundur V. Magnússon: |
| Gjaldkeri, Patreksfirði: | Ólafur Gestur Rafnsson: |
| Ritari, Stóra Krossholti | Torfi Steinsson: |
| Stjórnandi: | Maria Jolanta Kowalczyk: |
| Píanisti: | Elzbieta Kowalczyk: |
Sá gleðilegi atburður gerðist þann 1. maí 2008 hér á suðursvæði Vestfjarðakjálkans að
stofnaður var karlakór á vestasta odda Evrópu, á Bjargtöngum við Látrabjarg. Kórinn fékk nafnið "Karlakórinn Vestri" og að formlegri
athöfn lokinni á Bjargtöngum söng kórinn eitt lag.Vestri, útgerðarfélag á Patreksfirði, bauð öllum viðstöddum til kaffisamsætis í Breiðuvík eftir stofnfundinn. Allir eru kórfélagar af suðursvæði Vestfjarðakjálkans og voru fimmtán skráðir stofnfélagar. Æfingar hafa verið haldnar einu sinni í viku að undanförnu. Það er von kórfélaga að fleiri bætist í hópinn.
Heimasíða: http://vestri.123.is/
Magnús Olafs Hansson S: 868-1934

