SÍK | Samband Íslenskra Karlakóra

Formaður:     Ægir Bergsson Stjórnandi:     Elías Þorvaldsson Píanisti:     Elías Þorvaldsson Sagan Félagar í slökkviliðinu voru beðnir að skemmta á

Karlakór Siglufjarðar


Formaður:     Ægir Bergsson
Stjórnandi:     Elías Þorvaldsson
Píanisti:     Elías Þorvaldsson



Sagan
Félagar í slökkviliðinu voru beðnir að skemmta á árshátíð Starfsmannafélags Siglufjarðarkaupstaðar, (SMS) árið 1997. Slökkviliðsmennirnir æfðu nokkur lög og sungu. Slökkviliðsstjórinn Kristinn Georgsson sá um að kalla kórinn saman. Í framhaldi af þessu var svo ákveðið að halda starfinu áfram.

Karlakór Siglufjarðar var stofnaður laugardaginn 1. janúar 2000, kl. 00.10. Nafn kórsins var kynnt og tilkynnt að framhaldsstofnfundur yrði haldinn síðar. Kórinn leiddi síðan fjöldasöng og Elías Þorvaldsson stjórnaði. Stofnfélagar voru 27 talsins. Merki félagsins er sextugasta og fjórðaparts nóta ásamt nafninu.

Heimasíða:    http://www.kks.is/


Framsetning efnis

Samband Íslenskra Karlakóra
Stefna ehf Hugbúnaðarhús - Moya