| Formaður: | Guðmundur Guðlaugsson: | ggudl@heimsnet.is |
| Varaformaður: | Kristján Erling Jónsson | |
| Gjaldkeri: | Kjartan Gíslason | |
| Andri Þór Gestsson | ||
| Ib Göttler | ||
| Varamaður: | Kolbeinn Sveinbjörnsson | |
| Stjórnandi: | Páll Helgason | pallhelga@simnet.is |
SaganKarlakór Kjalnesinga var stofnaður árið 1991 af nokkrum félögum af Kjalarnesi og Kjós. Páll Helgason hefur stjórnað kórnum frá upphafi en hann hefur haft mikil áhrif á tónlistar- og menningarlíf í Kjósarsýslu. Kórinn hefur á að skipa 35-40 söngmönnum og er æfingaaðstaða kórsins að Fólkvangi á Kjalarnesi.
Kórinn hefur staðið fyrir uppákomum og farið í ferðalög svo sem til Kanada, Ítalíu, Parísar og Berlínar. Aldrei hefur farið á milli mála að kórinn var í heimsókn!
Kórinn hefur gefið út tvo geisladiska: “Kemur heilög hátíð” sem kom út árið 2001 og “Sönghestar” sem kom út árið 2005. Kórinn vinnur nú að upptökum á sínum þriðja diski. Er þar fjör og gleði höfð að leiðarljósi.
Heimasíða: http://www.karlakor.is/

