SÍK | Samband Íslenskra Karlakóra

Kötlumót 2010 Laugardaginn 16. október verður haldið söngmót sunnlenskra karlakóra á Flúðum. Í ár er Kötlumótið í umsjá Karlakórs Hreppamanna en Katla er

Kötlumót 2010

Laugardaginn 16. október verður haldið söngmót sunnlenskra karlakóra á Flúðum.
Í ár er Kötlumótið í umsjá Karlakórs Hreppamanna en Katla er Samband sunnlenskra karlakóra.

Á mótinu koma saman 15 íslenskir karlakórar, víðsvegar af landinu ásamt einum kór frá Finnlandi.
Setningarathöfnin hefst kl. 13:30 í Límtréshöllinni en síðan verður hver kór með sína tónleika og í lokin verður samsöngur allra kóranna.

Nánari upplýsingar á heimasíðu Karlakórs Hreppamanna http://www.kkhreppamanna.com/

Þetta verður mikil tónlistarveisla sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.
Allir hjartanlega velkomnir.


Framsetning efnis

Samband Íslenskra Karlakóra
Stefna ehf Hugbúnaðarhús - Moya